Skil

🔁 Skilareglur Snilldarvara

Skilafrestur jólagjafa 2025


Hægt að skipta eða fá inneignarnótu 14 dögum frá útgáfa skiptimiðans gegn framvísun skiptimiða og/eða pöntunarnúmers.

Ef þú vilt skipta vöru:

  • Vinsamlegast hafðu skiptimiða eða pöntunarnúmer við höndina, þar sem
    við þurfum að finna pöntunina í kerfinu.
  • Varan þarf að vera ónotuð, óopnuð og í upprunalegum umbúðum.

Ef varan sem þú vilt er ekki til:

  • Þú getur valið aðra vöru fyrir sama verð og greitt var fyrir vöruna sem
    skilað er.
  • Þú getur fengið inneign.
  • Þú getur skráð þig á biðlista og fengið tilkynningu þegar varan kemur
    aftur.



📦 Skilafrestur í vefverslun

Þú getur hætt við kaup innan 14 daga frá því að þú færð vöruna.

Varan þarf að vera ónotuð, í upprunalegum umbúðum og með kvittun eða pöntunarnúmeri.

Endursending er á þinni ábyrgð og kostnað, nema um sé að ræða ranga eða gallaða vöru.

Þú getur einnig skilað vörunni í verslun okkar í Hæðasmára 4.

Þegar við höfum móttekið vöruna, endurgreiðum við innan 30 daga.

🔄 Vöruskipti

Þú getur skipt vöru í aðra eða fengið inneignarnótu í verslun okkar í Hæðasmára 4.

Ef nýja varan er ódýrari færðu inneign fyrir mismuninn.

🛍 Skilareglur í verslun

Hægt er að skila vörum innan 30 daga frá kaupum, gegn því að framvísa kvittun.

Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegu ástandi.

Ekki er hægt að fá endurgreitt nema um galla sé að ræða.

Útsöluvörur og vörur sem þegar hafa verið skipt má ekki skila.

⚠️ Gölluð eða röng vara

Ef vara er gölluð eða röng, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á info@snilldarvorur.is eða skilaboð á Facebook.

Við leysum málið eins fljótt og hægt er og greiðum fyrir endursendingu ef við á.

Samkvæmt lögum (nr. 48/2003) hefur þú rétt á:

Viðgerð, skiptum eða endurgreiðslu – allt án aukakostnaðar fyrir þig.

Tilkynntu gallann eins fljótt og hægt er, en þó innan 2 mánaða frá því að þú tókst eftir honum.