Terms of service
1. Skilgreining
- Seljandi er Aries ehf. ( Snilldarvörur ), kennitala: 650718-0540, Virðisaukanúmer 132124
- Heimilisfang: Tónahvarf 5
- Símanúmer: 7936699
- Netfang: info@snilldarvorur.is
- Aries ehf. (Snilldarvörur.is) áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
2. Afhending vöru
- Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
- Ef pantað er vöru sem er í forpöntun ásamt öðrum vörum sem til eru á lager þegar pöntun er lagt fram verður pakki ekki sendur af stað ef valið er póstsendingu fyrr en að forpöntunarvaran er komin á lager.
- Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef að varan er uppseld.
- Eðlilegur afhendingatími vöru eru 1-3 virkir dagar frá því að pöntun hefur verið staðfest og er það mismunandi eftir vöru.
- Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti og Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts og Dropp um afhendingu vörunnar. Aries ehf. (snilldarvörur.is) ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Aries ehf. (snilldarvörur.is) til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
3. Pöntun
- Pöntun eru bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun.
- Kaupandi fær senda staðfestingu á kaupum þegar pöntun er skráð. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einnig ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.
- Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar.
- Kaupandi hefur 1 viku til að sækja vöru eftir að tilkynning hefur borist kaupanda. Ef pöntunin er ekki sótt innan 1 viku þ.e.a.s 7 dögum eftir kaup er okkur heimilt að selja öðrum vöruna sem keypt var eftir þann tíma. Kaupandi þarf þá að bíða eftir næstu sendingu á vörunni eða fá endurgreitt.
4. Verð á vöru og sendingarkostnaður
- Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti og Dropp.
5. Upplýsingar
- Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni.
- Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.
6. Verð
- Snilldarvörur.is áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og undangenginnar tilkynningar.
- Villur í verði geta orðið til fyrir slysni og eru ekki bindandi fyrir snilldarvörur.is og er okkur heimilt að breyta því án frekari útskýringa
- Verðhækkanir sem og verðlækkanir er eiga sér stað eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu.
- Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega.
- Öll verð eru gefin upp í Íslenskum krónum og með virðisaukaskatti.
7. Gölluð vara
- Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
8. Greiðsla
- Við tökum á móti: VISA og Mastercard
- Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu.
- Pöntun er ekki staðfest fyrr en greiðsla er innt af hendi.
- Ef að sölu hefur orðið og vara ekki fáanleg, er kaupanda boðið uppá endurgreiðslu, aðra sambærilega vöru eða að bíða eftir að vara verði fáanleg.
10. Póstsendingar Innanlands
- Allar vörur sem eru sendar fara með Íslandspósti og Dropp.
- Um leið og sending er farin frá seljanda er hún á ábyrgð kaupanda.
- Seljandi og kaupandi geta samið sérstaklega um tryggingu á sendingu og þarf kaupandi sérstaklega að biðja um það hjá info@snilldarvorur.is
11. Póstsendingar til útlanda
- Ekki er hægt að panta og fá sent til útlanda eins og er.
12. Yfirferð á vörum
- Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga.
- Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda.
13. Réttur við galla
- Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð eða nýja vöru.
- Tilkynning á galla verður að berast skriflega til info@snilldarvorur.is. Mælt er með að tilkynningin berist innan 30 daga frá því galli uppgötvast.
- Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.
14. Ábyrgð
- Ábyrgðir seljanda hafa ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem á er kveðið um í lögum um neytendakaup.
- Ábyrgð vegna galla á vöru er 2 ár eftir kaupdagsetningu, nema að annað sé tekið fram.
- Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu eða umbúðum vöru sé framvísað.
- Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits.
- Ábyrgð fellur úr gildi ef vara hefur verið opnað eða átt hefur verið við hana án yfirumsjónar/samþykkis seljanda þrátt fyrir að þar hafi verið að verki verkstæði og/eða viðurkenndur aðili.
- Ábyrgðin fellur einnig niður ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar.
- Seljandi er ekki skuldbundinn til að taka þátt í viðgerðarkostnaði eftir 2 ára ábyrgðartíma.
- Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála, þó innan eðlilegra tímamarka.
15. Persónuvernd
- www.snilldarvörur.is fer með persónuupplýsingar í samræmi við nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga
- Persónuupplýsingar eru geymdar í gagnagrunni www.snilldarvörur.is og hefur enginn nema eigendur vefsins og umsjónarmenn hans aðgang að þeim. Í engum tilvikum eru persónuupplýsingar afhendar þriðja aðila. Við kaup á vöru eða þjónustu veitir viðskiptavinur www.snilldarvörur.is samþykki sitt fyrir að fyrirtækið safni og vinni úr persónuupplýsingum úr gagnagrunni fyrirtækisins.
- www.snilldarvörur.is mun ekki undir neinum kringumstæðum geyma neinar kreditkorta upplýsingar kaupanda, þar sem kaupandi fer sjálfkrafa inná örugga greiðslusíðu Saltpay og gengur frá greiðslu fyrir kaupum þar.
- Aðgangur þinn og notkun á www.snilldarvörur.is er háð skilmálum og skilyrðum sem koma fram í þessari tikynningu um lagaleg atriði. Ef þú samþykkir ekki þessa skilmála, skaltu ekki nota þessa síðu. Þessir skilmálar geta breyst frá einum tíma til annars án fyrirvara.
16. Úrlausn vafamála
- Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt.
- Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Neytendasamtökin.
- Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda .
17. Þjónusta og upplýsingar
- Ef þú hefur spurningar um innihald eða efni heimasíðunnar er þér velkomið að hafa samband við okkur info@snilldarvorur.is. Við munum svara öllum þínum fyrirspurnum með ánægju innan 2 virkra daga
18. Trúnaður (Öryggisskilmálar)
- Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
19. Lög og varnarþing
- Skilmálar okkar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmálanna skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.