Segul gluggaskafa sem auðveldar þér þrif á rúðum á efri hæðum.
Þrífur báðar hliðar á rúðunni á sama tíma.
x
Einstaklega hentug og lausnamiðuð vara!
Gluggar á Íslandi eiga ekki í vandræðum með það að skítast fljótt út. Eftir veturinn eru flestir gluggar hjá íslendingum skítugir og þá þurfum við að stíga inn. Gluggaskafan á heima inná öllum heimilum Íslendinga og sérstaklega hjá þeim sem búa í fjöleignarhúsum.
Hér bjóðum við þér upp á einstaklega einfalda og lausnamiðaða vöru sem gerir öllum kleift að þrífa rúðurnar heima án vandræða.
Gluggahreinsirinn hefur reynst fólki í fjöleignarhúsum afskaplega vel þar sem það er erfitt að þrífa gluggana að utanverðu.
Helstu upplýsingar :
Hentar vel á tvöfalt gler (28 mm) sem er í flestum húsum á Íslandi
Virkar fyrir 15-30mm gler
Aukapúðar fylgja með
Skilur ekki eftir för á rúðunni
Þrífur báðar hliðar rúðurnar á sama tíma
Öryggisband sem fylgir svo gluggahreinsirinn dettur ekki
*Mikilvægt að passa puttana, segullinn er gríðarlega kraftmikill*
Almennar upplýsingar um vöruna :
Efni : Plast, segull, gúmmí.
Litur : Hvítur og rauður
Hvernig á að nota vöru?
(Sjáðu myndina fyrir leiðbeiningar)
Deila
Afhendingartími
Allar sendingar berast með DROPP og Póstinum.
Pakkinn tekur yfirleitt 0-2 virka daga að berast til þín 📦