Skip to product information
1 of 11

Göngubretti

Göngubretti

Verð 51,490 kr
Verð 51,490 kr Útsöluverð 51,490 kr
Afsláttur Uppselt
m/vsk
Litur
EMPTY DOM REMOVE PROTECTOR
Situr þú mikið fyrir framan skrifborðið á daginn?
Göngubretti fyrir heimili og skrifstofur – Haltu þér virkum án þess að yfirgefa vinnusvæðið!
.
Afar nett göngubretti sem kemur sér einstaklega vel fyrir í heimahúsum og undir skrifborðum á vinnustofunni.

Fyrirferðalítið og lausnamiðað göngubretti sem kemur allri blóðrásinni af stað.
.

Þetta snjalla og hljóðláta göngubretti er hannað með nútímann í huga – fullkomið fyrir skrifstofuna, heimilið eða jafnvel undir skrifborðið þitt. Það gerir þér kleift að hreyfa þig á meðan þú sinnir daglegum verkefnum, hvort sem þú ert að vinna, horfa á sjónvarpið eða hlusta á hlaðvarp.

Bretti er með öruggu yfirborði, þægilegri stjórn og tekur lítið pláss – auðvelt að renna undir sófa eða rúm þegar það er ekki í notkun.

5 staðreyndir um af hverju þú þarft göngubretti heima eða á skrifstofunni:

  1. Bætir heilsuna án þess að rjúfa vinnudaginn – Hjálpar til við að bæta blóðrás, líkamsstöðu og draga úr stirðleika.
  2. Dregur úr streitu og eykur einbeitingu – Létt hreyfing á meðan unnið er getur aukið skap og fókus.
  3. Sparar tíma – Hreyfing og vinna á sama tíma = tvö verkefni í einu!
  4. Hvetur til daglegrar hreyfingar – Með brettinu innan seilingar er auðveldara að halda rútínu.
  5. Fullkomið fyrir íslenskt veður – Það er ekki alltaf hægt að fara út að ganga, en þú getur alltaf gengið inni!

 

 Helstu eiginleikar:
  • ✔️ Mjúk og hljóðlát hreyfing
  • ✔️ Létt og færanlegt – auðvelt að geyma
  • ✔️ Fjarlæg stjórn
  • ✔️ Sterk bygging – hentar öllum aldurshópum
  • ✔️ Engin samsetning nauðsynleg – tilbúið til notkunar úr kassanum

HELSTU UPPLÝSINGAR UM GÖNGUBRETTIÐ
  • Afar nett hlaupabretti sem hannað er fyrir heimahús
  • Passar undir öll skrifborð
  • Frábært inn á vinnustofuna og skrifstofuna
  • Hámarkshraði : 8km/h
  • Kemur með LCD skjá sem sýnir hraðan og fjarlægð
  • Stærð vöru : 122cm - 50cm - 112CM
  • Hraðastýring með fjarstýringu
  • Fastur halli
  • Hámarksþyngd notanda er 100kg
  • Þyngd vöru : 23kg
  • W : 650
  • Litur : Silfur og bleikur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Afhendingartími

Allar sendingar berast með DROPP og Póstinum.

Pakkinn tekur yfirleitt 0-2 virka daga að berast til þín 📦

Skoða allar upplýsingar
Meira en 1.600 umsagnir frá kúnnum sem hafa fengið hraða sendingu, trausta þjónustu og vörur sem standast væntingar ⭐

Customer Reviews

Overall rating: 4.8 / 5 from 77 reviews.

Customer video review of Göngubretti (Forpöntun)

Þetta göngu/hlaupabretti er sú mesta snilld sem ég hef keypt mér af svona græjum. Svart og bleikt sem er geggjað, gott verð og þú getur skotist í göngutúra nokkrum sinnum yfir daginn. Nýjustu rannsóknir sýna að 6x10mín. göngutúr er hollarri en 1x60mín. Svo gerir maður þetta allt í bland. Núna koma gestir og barnabörnin í heimsókn í göngutúr. ❤️

Göngubretti (Forpöntun)

Customer video review of Göngubretti

Mjög ánægð og barnabörnin líka 😄

Göngubretti

Customer photo review of Göngubretti

Frábært hlaupabretti, mæli eindregið með því, takk fyrir frábæra þjónustu

Göngubretti

Customer photo review of Göngubretti

Frábært þjónusta 👌💕

Göngubretti

Customer video review of Göngubretti

Frábært vörur

Göngubretti

Hæ. Ég er mjög ánægð með brettið, nota það á hverjum degi. Svo gott að geta labbað inni þegar ég nenni ekki út í göngutúr, er kanski rigning. Þegar ég sótti brettið fékk ég góðar móttökur og ungi maðurinn bar það útí bíl í skýfalli 12 ágúst Á ekki mynd af mér á brettinu Takk kærlega fyrir ,,allt stóðst" Kv Kristín

Göngubretti (Forpöntun)

Alveg frábært göngubretti, takk fyrir Snildarvörur 💯💥

Göngubretti (Forpöntun)

Hef notað göngubrettið á hverjum degi og stundum tvisvar á dag síðan ég fékk það. Krakkarnir mínir nota það líka. Algjör snilld og á geggjuðu verði

Göngubretti (Forpöntun)

Eg er 82 ára kona, ég keypti hjá ykkur gongubretti sem ég elska labba á því í ca. 20 til 30 mínútur flesta daga. Kærar þakkir

Göngubretti (Forpöntun)

Frabært göngubretti se sko ekki eftir að hafa fengið mer það

Göngubretti (Forpöntun)

Algjör snilld! Bjóst ekki við því en þetta eru bestu kaup ársins.

Göngubretti (Forpöntun)

Æðislegt, eykur lífsgæði í kuldanum❤️

Göngubretti

Brettið stendur svo sannarlega undir væntingum! Notað daglega og þægilegt að geta sett það svo undir sófann! Mæli með!

Göngubretti

Stenst allar væntingar.

Göngubretti

The waking pad is very nice, me and my family are very happy with it! The delivery took much longer than we expected, but it’s okay, because stuff always politely get back to me when I asked how it’s going :))

Göngubretti

Mjög gott bretti sem ég nota daglega. Þjónusta ykkar er einnig mjög góð

Göngubretti

Gjörsamlega elska þetta göngubretti! Hreyfing er mér mjög mikilvæg og ég á ekkert voða auðvelt með að fara út að labba alltaf og þá kemur brettið sterkt inn.

Göngubretti

Flott hlaupabretti,mæli með því

Göngubretti

Rafmagnssnúran mætti vera lengri. Annars fínt og virkar vel

Göngubretti

Mjög gott bretti, notað daglega af mér og börnunum mínum sem eru 10 og 20 ára

Göngubretti

Love it !

Göngubretti

Fyrirferðarlítil og létt græja sem virkar samt svona skrambi vel

Göngubretti

Mjög gott hlaupa bretti og margar stillingar. Hélt fyrst að þetta væri bara göngu bretti en var svo ánægð að sjá að það er hlaupa bretti og hægt að stilla margar hraða stillingar. Eini gallinn sem mér finnst er að stuðnings handfangið er frekar laust það er engar stillingar til að halda því föstu. En annars er ég mjög ánægð með brettið .

Göngubretti

takk fyrir gönguleiðin virkar

Göngubretti

Kærar þakkir göngubrettið er fallegt og verður vel notað

Göngubretti

Geggjað bretti, lítið og nett og fer ekkert fyrir því. Mæli með þessu!

Göngubretti

Good

Göngubretti

Frábært ☀️

Göngubretti

Mjög gott göngubretti.

Göngubretti

Algengar spurningar

Hvenær get ég búist við að fá vöruna mína?

Við afgreiðum allar pantanir innan 1–2 virkra daga. Afhendingartími fer eftir því hvort varan er til á lager eða í forpöntun. Nánari upplýsingar má finna í vörulýsingu hverrar vöru.

Er hægt að sækja vöruna?

Já! Við bjóðum upp á afhendingu í Hæðasmára 4, 201 Kópavogi. Þegar varan þín er tilbúin til afhendingar færðu tilkynningu.

Hvað ef varan mín er gölluð eða skemmd?

Ef þú færð gallaða eða skemmda vöru, hafðu samband við okkur strax á netfangið info@snilldarvorur.is eða á Facebook með myndum af vörunni og pöntunarnúmeri. Við leysum málið eins fljótt og auðið er!

Get ég skilað vöru?

Já, þú getur skilað ónotaðri vöru innan 14 daga frá móttöku. Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi og í óopnuðum umbúðum. Hafðu samband áður en þú kemur í verslunina með vöruna til baka.

Hvaða greiðslumöguleikar eru í boði?

Við tökum við greiðslu með kreditkortum, debetkortum, Netgíró, Aur og Pei. Einnig er hægt að greiða með millifærslu ef þess er óskað.

Eru allar vörurnar á lager á Íslandi?

allar vörur eru til á lager á Íslandi, nema varan sé í forpöntun og á leið til landsins.

Hvernig virkar forpöntun?

Ef varan er í forpöntun getur þú tryggt þér eintak með því að panta fyrirfram. Afhendingartími er alltaf tilgreindur á vörusíðunni og við höldum þér upplýstum um ferlið.

Hvernig fæ ég afslátt eða tilboð?

Við sendum reglulega afsláttarkóða og tilboð í gegnum póstlistann okkar og á samfélagsmiðlum. Skráðu þig í póstlistann og fylgdu okkur á Facebook og Instagram til að missa ekki af neinu!

Get ég breytt eða hætt við pöntun?

Ef pöntunin þín hefur ekki verið send út er oft hægt að breyta henni eða hætta við. Hafðu samband sem fyrst og við gerum okkar besta til að koma til móts við þig.

Seljið þið til fyrirtækja?

Já, við bjóðum upp á sérkjör fyrir fyrirtæki og stofnanir. Hafðu samband við okkur til að fá tilboð í stærri pantanir eða sérstakar lausnir.